Þjónustuver Vaðlaheiðarganga er aðeins með netfang vinsamlega sendið póst á veggjald@veggjald.is

Fara í efni

Öryggisstefna

Það er stefna Vaðlaheiðarganga hf. að tryggja öryggi upplýsinga félagsins og viðskiptavina sinna m.t.t leyndar, réttleika og tiltækileika. Þá er það stefna félagsins að standa vörð um öryggi gagna og þess búnaðar sem vistar gögnin.

    • Vaðlaheiðargöng hf. leitast við að finna og meðhöndla áhættu. Áhættumat og innri úttektir eru framkvæmdar reglulega til að ákveða hvort frekari aðgerða sé þörf og til að vinna að stöðugum umbótum.
    • Vaðlaheiðargöng hf. verndar gögn og upplýsingakerfi gegn óheimiluðum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, tapi eða flutningi.
    • Vaðlaheiðargöng hf. starfrækir skilvirk aðgangsöryggiskerfi að húsnæði og upplýsingakerfum fyrirtækisins með það að markmiði að vernda gögn og búnað gegn rekstrartruflunum, misnotkun, þjófnaði, skemmdarverkum, glötun o.s.frv.
    • Starfsmönnum og þjónustuaðilum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri mál Vaðlaheiðarganga hf., viðskiptavina eða annarra starfsmanna.
    • Vaðlaheiðargöng hf. stuðlar að virkri öryggisvitund starfsmanna, viðskiptavina, þjónustuaðila og gesta með kynningum og þjálfun. Starfsemi og starfshættir skulu vera til fyrirmyndar hvað varðar upplýsingaöryggi.
    • Vaðlaheiðargöng hf. fylgir góðum viðskiptaháttum, landslögum og persónuvernd til að tryggja hagsmuni viðskiptavina.

Vaðlaheiðargöng hf. endurskoðar þessa stefnu eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.