Þjónustuver Vaðlaheiðarganga er aðeins með netfang vinsamlega sendið póst á veggjald@veggjald.is
Ný verðskrá tekur gildi 2. janúar 2025 - nánar hér

Fara í efni

Spurt & svarað

Skráning/afskráning

Hvað er leyfilegt að eiga margar fyrirframgreiddarferðir ?

Einungis er hægt að eiga 120 ferðir í einu á hverjum aðgangi

Hvernig virkar mánaðaráskriftin?

 Í mánaðaráskrift greiðir þú fasta upphæð í byrjun hvers mánaðar óháð fjölda ferða um göngin.

Hver mánaðaráskrift er fyrir einn fólksbíl. Ef bíllinn bilar eða er seldur er hægt að skipta um bíl í áskriftinni með því að senda tölvupóst á þjónstuver.

Segja þarf áskriftinni upp fyrir 1. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi frá og með næstu mánaðarmótum.

Senda þarf tölvupóst á með upplýsingum um bílnúmer og kt. greiðanda á veggjald@veggjald.is til að sækja um eða segja upp mánaðaráskrift.

Er kostnaður við skráningu?

Nei, skráning á veggjald.is er án endurgjalds.

Hvernig uppfæri ég greiðslukort ?

Hér eru upplýsingar um það hvernig greiðslukortið er uppfært:

Uppfæra greiðslukort

Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login

Velja þarf „greiðslukort“ úr listanum sem er hægra megin á skjánum.

 

Þá kemur þessi valmynd upp 

 

Ef það þarf að skipta alveg um kort þá velur þú ruslafötuna og

samþykkir að eyða kortinu.

 

Smellir á „skrá greiðslukort“

 Setur inn umbeðnar upplýsingar og ýtir á „áfram“

 

Ef kortanúmerið er það sama en nýr gildistími, ýtir þú á pennann og setur inn

Nýjan gildistíma og ýtir á „uppfæra“

 

Hversu mörg ökutæki má skrá?

Hægt er að skrá allt að tíu ökutæki undir 3,5 tonnum og ótakmarkaðan fjölda ökutækja 3,5 tonn og þyngri. 
Hægt er að skipta út ökutækjum á reikningum á einfaldan hátt undir hlekknum "ökutæki"

Hver ber ábyrgð á skráðum upplýsingum á veggjald.is?

Sá sem skráir upplýsingar á veggjald.is ber ábyrgð á því að þær séu réttar.

Þarf ég að skrá mig fyrir hverja ferð?

Hægt er að keyra í gegnum Vaðlaheiðagöng án þess að skrá sig. Sé það gert er rukkun send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis fyrir ferðinni ásamt innheimtugjaldi. Sé valið að greiða í gegnum veggjald.is er hægt að kaupa eina ferð eða stofna aðgang þar sem ferðin gjaldfærist sjálfkrafa og hægt er að kaupa ferðir á afsláttarkjörum. 

Hvað gerist við eigendaskipti ökutækja?

Við eigendaskipti ökutækis og/eða aðrar breytingar ber notanda að afskrá númer ökutækisins á veggjald.is. Einfalt er að skrá annað ökutæki, eina sem þarf að gera er að skrá nýtt skráningarnúmer. Þessi breyting hefur ekki áhrif á fyrirframgreiddar ferðir, enda eru þær tengdar aðgangi hvers og eins ökumanns en ekki einstaka ökutæki.

Hvað gerist ef ökumaður ekur í gegnum göngin á ökutæki sem hann á ekki sjálfur?

Eigandi / umráðamaður ökutækis fær rukkun fyrir einni ferð auk innheimtugjalds í heimabanka. Hægt að kaupa eina ferð á veggjald.is óháð því hver er skráður eigandi ökutækis.

Af hverju segir kerfið að ökutækið sé nú þegar skráð?

Ökutækið er þegar skráð á notanda í kerfinu og þarf sá sem skráði ökutækið inn að afskrá það. Einnig er hægt að fá aðstoð með því senda póst á veggjald@veggjald.is

Á að skrá einkanúmer eða fastanúmer ökutækis?

Skrá skal það númer sem er á númeraplötu ökutækis (einkanúmer).

Hvernig afskrái ég ökutæki af aðgangi mínum?

Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login  - smellir á nafnið þitt/strikin 3 efst í hægra horninu, velur „ökutæki“ og setur ökutækið í ruslafötuna.

Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur „ökutæki“  og setur ökutækið í ruslafötuna.

Hvernig skrái ég ökutæki á aðgang minn?

Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login - smellir á nafnið þitt efst í hægra horninu, velur „ökutæki“  velur skrá ökutæki, setur inn bílnúmer og staðfestir.

Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur skrá ökutæki, setur inn bílnúmer og staðfestir.

Hvernig skrái ég greiðslukort á aðgang minn?

Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login - smellir á nafnið þitt/ strikin 3 efst í hægra horninu, velur „greiðslukort“  velur skrá greiðslukort, setur inn greiðslukortanúmerið og staðfestir.

Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur skrá „greiðslukort“, setur inn greiðslukortanúmer og staðfestir.

Hvernig afskrái ég greiðslukort af aðgangi mínum?

Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login - smellir á nafnið þitt/strikin 3 efst í hægra horninu, velur „greiðslukort“ og setur greiðslukortið í ruslafötuna.

Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur „greiðslukort“  og setur greiðslukortið í ruslafötuna.

Hvar greiði ég fyrir eina ferð?

Hægt er að greiða fyrir eina ferð:

  1. Greiða eina ferð á www.veggjald.is  -  Hver ferð gildir sólarhring frá greiðslu. 
  2. Keyra í gegn án skráningar. Rukkun er send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis ásamt innheimtugjaldi. 
  3. Stofna aðgang á www.veggjald.is  - þar sem stök ferð gjaldfærist sjálfkrafa og hægt að kaupa fleiri ferðir á afsláttarkjörum. 

Ég hef stofnað aðgang, hvernig borga ég fyrir ferðina?

Þegar þú hefur stofnað aðgang og skráð inn greiðslukort og bílnúmer, þarft þú ekki að gera neitt frekar. Þú ekur í gegn og færð kvittun fyrir ferðinni í tölvupósti.

Þarf að borga í göngin þegar Víkurskarð er lokað?

Já það þarf alltaf að greiða fyrir ferð í gegnum Vaðlaheiðargöng. 

Þægilegast er að skrá sig á https://mitt.veggjald.is/registerAccount?language=is

Finnur þú ekki það sem þú leitar að?